![Frá afhendingu 2018. Aðsend mynd.]()
Kiwanisklúbbarnir í Skagafirði Freyja og Drangey munu afhenda öllum börnum í 1. bekk grunnskólanna í Skagafirði reiðhjólahjálma næstkomandi sunnudag klukkan 11 á skólalóð Árskóla á Sauðárkróki. Til stóð í upphafi að athöfnin færi fram á laugardeginum en var færð til vegna umhverfisdags Fisk Seafood sem fram fer á sama tíma víða í héraðinu.