![>Guðmundur Haukur Jakopsson, forseti sveitarstjórnar Blönduósbæjar, og Jón Gunnarsson, dómsmálaráðhe…]()
Dómsmálaráðherra hefur, með vilyrði fjármálaráðherra, ákveðið að ganga til viðræðna við Blönduósbæ um kaup á stjórnsýsluhúsnæði bæjarins að Hnjúkabyggð 33 á Blönduósi. Á heimasíðu Stjórnarráðsins segir að með kaupum á fasteigninni verði hægt að bæta nýtingu og auka hagræði í rekstri en ríkið á fyrir 1. og 3. hæð hússins sem er nýtt undir starfsemi sýslumannsins á Norðurlandi vestra og lögreglunnar.