![Glaðbeittir þátttalendur á mótinu í gær. MYND AF SÍÐU PKS]()
Pílukastfélag Skagafjarðar stóð í gærkvöldi fyrir alveg hreint frábæru pílumót en þá var boðið upp á partý tvímenning fyrir krakka í 3.-7. bekk á svæðinu. Mótið fór fram í húsnæði PKS og var þátttakan fín, nítján krakkar mættu til leiks. Sigurvegarar mótsins voru þau Birna Guðrún Júlíusdóttir og Friðrik Henrý Árnason og fengu að launum gullmedalíu. Í öðru sæti urðu Rakel Birta Gunnarsdóttir og Hólmar Aron Gröndal.