![>Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður og Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra. Aðsen…]()
Lilja Dögg Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Hörpu Þórsdóttur til að gegna embætti þjóðminjavarðar. Harpa hefur starfað við íslensk og erlend söfn í rúm 20 ár og sem safnstjóri Listasafns Íslands stjórnað einu af þremur höfuðsöfnum íslenska ríkisins.