Quantcast
Channel: Feykir.is
Viewing all articles
Browse latest Browse all 18601

Jón Gnarr vill skoða þann möguleika að opna Háholt að nýju

$
0
0

>Jón Gnarr ásamt Sigfúsi Inga, Gísla Sigurðssyni og Einari E. Einarssyni. MYND FACBOOKSÍÐA JG.

Árið 2017 var tekin ákvörðun af Barnaverndarstofu að loka meðferðarheimilinu Háholti í Skagafirði án samráðs við Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar. Breyttar meðferðaráherslur voru sagðar helsta ástæðan og að færa ætti starfsemina á höfuðborgarsvæðið. Húsið var fyrir skemmstu auglýst til sölu og Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar sem situr í velferðarnefnd Alþingis vakti athygli á því að nú væri búið að auglýsa Háholt til sölu sem áður var meðferðarheimili fyrir börn. Jón segir í pistli sínum að hann hafi fyrst og fremst boðið sig fram til Alþingis til að vinna að málefnum barna í vanda sem honum finnst vera málaflokkur sem hafi gleymst.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 18601