![>Mynd tekin fyrir jólatónleika Kammerkórsins.MYND AÐSEND]()
Í aðdraganda Sæluviku þegar vorið fer að koma halda kórar gjarnan tónleika og deila með áheyrendum uppskeru vetrarstarfsins. Skagfirski Kammerkórinn er engin undantekning á því. Árlega heldur kórinn tónleika á Sumardaginn fyrsta. Sumar er í sveitum er yfirskrift tónleikannan en kórinn syngur undir stjórn Rannvá Olsen.