![>Mynd tekin 20. apríl á síðasta vetrardegi 2022.]()
Brúarstæðið er litlu neðar en gamla Lestavaðið sem var alfaraleið fyrir tíma allrar brúagerðar. Gamla brúin sunnan við Syðra-Hól við svonefndan Rana var í notkun fram yfir 1970 í miklum halla og með erfiða aðkomu og illfær í snjóum og hálku. Mikill farartálmi á vetrum. „Nýja brúin“ er litlu austar gríðarlega há einbreið og með miklum halla til norðurs.